Heildarlausnir í síma og á vef

Central Pay býður verslunum og veitendum þjónustu heildarlausnir í símagreiðslum og vefgreiðslum með WeChat Pay og Alipay, auk þess að bjóða upp á markaðsþjónustu á vinsælasta samskiptamiðli Kínverja, WeChat. Ef markmiðið er að auka þjónustu og sölu til kínverskra viðskiptavina, hvort sem er hér á landi eða í Kína, þá hefur Central Pay greiðslu- og markaðslausnina. Lesa meira

 
 
alipay-wechat-logos.png
 
 
Greiðslulausnir
 
Centara_kassi.png

Tenging Við Kassakerfi

Við aðlögum afgreiðslukerfi þitt að greiðslulausnum WeChat Pay og AliPay. Greiðslulausn Central Pay fyrir WeChat Pay og Alipay bjóða upp á sérbyggt og þægilegt TaxFree-umhverfi.

Hafðu samband til að athuga hvort við getum tengt þitt kassakerfi við WeChat og AliPay greiðslulausnina okkar.

cp-posi.png

POS greiðslulausn

Sérstök posalausn frá Central Pay sem tengist beint við AliPay og WeChat greiðslulausnirnar. Þessi posi gengur fyrir rafhlöðu og er net-tengdur, svo það er auðvelt að hafa hann með sér á ferðinni. Posalausn Central Pay fyrir WeChat Pay og Alipay býður upp á sérbyggt og þægilegt TaxFree-umhverfi.

2paynowapp.png

Snjallsímalausn

Central Pay býður einnig upp á greiðslulausn með snjalltæki. Viðskiptavinir okkar geta þá tekið við greiðslum með snjallsímum eða spjaldtölvum, iOS eða Android. Þessi lausn er einfaldlega App sem virkar eins og posi. Þú slærð inn upphæð og skannar síðan QR-kóða vinskiptavinar til að klára greiðslu.

imac.png

Greiðslugátt á netinu

Ein vinsælasta greiðslulausn Central Pay er greiðslugátt á netinu. Hægt er að fá AliPay og WeChat Pay greiðslugátt í einni og sömu lausninni. Greiðslugáttin okkar virkar nákvæmlega eins og hver önnur greiðslugátt hjá kortaþjónustufyrirtækjum.

Opnaðu fyrir WeChat og AliPay greiðslur á netinu og leyfðu okkur að hjálpa þér að auka sölu og sýnileika.

Markaðsþjónusta
 
chang-hsien-121292-unsplash.jpg

Markaðsþjónusta Central Pay er byggð í kring um snjallforritin WeChat og AliPay.
Yfir 90% af öllum símgreiðslum í Kína fara í gegnum þessi tvö forrit sem einnig eru samfélagsmiðill og fjármálaforrit.

WeChat

WeChat er langvinsælasti samfélagsmiðill Kína með yfir milljarð reglulegra notenda. WeChat má líkja við Facebook, Instagram, PayPal og Google í einum samfélagsmiðli, sem gerir það sérstaklega öflugt tól til markaðssetningar og sölu.

AliPay

AliPay er eitt vinsælasta snjallforrit í heiminum með yfir 700 milljón notendur.
Það má líkja AliPay við TripAdvisor þar sem kínverskir ferðamenn nota forritið mikið við skipulagningu á ferðalögum. Þar nota þeir mest svokallaðar “City Pages” til að skoða hvaða vörur og þjónustur eru í boði í hverri borg fyrir sig.

Nánari upplýsingar um markaðsþjónustu Central Pay

 

Algengar Spurningar

 

+ Hvað er Central Pay?

Central Pay er fyrirtæki stofnað 2018 með þeim tilgangi að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að auka sölu og sýnileika gagnvart kínverskum ferðamönnum. Central Pay býður söluaðilum upp á greiðslulausnir og markaðsþjónustu í gegnum Alipay og WeChat Pay.

+ Hvað er WeChat og Alipay?

WeChat og AliPay eru tvö stærstu snjallforrit Kína. WeChat er samfélagsmiðill með yfir milljarð notenda og Alipay er fjármálaforrit með 700 milljónir notenda. Samtals fara um 90% af öllum símgreiðslum Kínverja í gegnum þessi tvö snjallforrit.

WeChat Pay er greiðsluþjónusta sem er hluti af og innbyggð í vinsælasta samfélagsmiðil Kína, WeChat. Áætlað að yfir milljarður manna séu virkir notendur á WeChat sem gerir hann að einum vinsælasta samfélagsmiðli í heimi. Þar sem notkun vestrænna samfélagsmiðla tíðkast ekki í Kína hefur verið haft á orði að WeChat sameini Facebook, Instagram og WhatsApp og bjóði að auki upp á greiðslulausn. Vöxtur WeChat Pay hefur verið ævintýralegur á undanförnum árum og er áætlað að greiðslulausnin sé nú sá mest notaða í verslunum og þjónustustöðum í Kína. Samspil samfélagsmiðils og greiðsluþjónustu skapar seljendum einstakt tækifæri við að ná til viðskiptavina, rækta samband við þá og ná til vina þeirra á WeChat. Ein vinsælasta leiðin til þess eru sérsniðin WeChat-öpp, m.a. þau sem kölluð eru smásíður (e. mini-program). Á smásíðu fyrirtækis í WeChat getur viðskiptavinur keypt vöru eða þjónustu með einum hnappi og nýtt sér tilboð. Við komuna til landsins getur smásíðan aðstoðað viðskiptavininn við að finna verslun eða þjónustustað. Við kaup getur viðskiptavinurinn vakið athygli vina og vandamanna á vöru eða þjónustu með tengingu á smásíðu fyrirtækisins. Þegar heim er komið getur viðskiptavinurinn enn tengst verslun eða þjónustuaðila í gegnum smásíðuna. Þannig geta skapast möguleikar til margföldunar á sölu og má segja að tækifæri fyrir seljendur séu óþrjótandi.

Alipay er greiðsluþjónusta sem allt frá árinu 2004 hefur verið þróuð innan samstæðu Alibaba, eins stærsta fyrirtækis heims á sviði netviðskipta. Alipay hafði lengi vel yfirburðastöðu í greiðslulausnum í Kína en hefur á síðari árum mætt harðri samkeppni frá WeChat Pay. Alipay er enn mest notað við kaup á netinu í Kína og er jafnframt vinsæl greiðslulausn í hvers kyns viðskiptum. Þegar greiðslulausnin er komin upp mun Central Pay sjá til þess að fyrirtækið fái formlega síðu (e. profile) á Alipay. Alipay býður upp á margskonar samskiptaleiðir til þess að ná til viðskiptavina og auglýsa vörur og þjónustu, meðal annars með afsláttarmiðum og öðru markaðsefni. Slík tilboð geta t.d. verið tengd því að viðkomandi sé í grennd við Alipay söluaðila. Með þessum hætti geta fyrirtæki vakið athygli á vörum sínum eða þjónustu, hvort sem er með ljósmyndum eða hreyfimyndum, sett inn leiðbeiningar um staðsetningu sína og aðrar upplýsingar. Alipay hentar einnig vel fyrir fyrirtæki sem selja vörur sínar á netinu.

+ Afhverju ætti ég að auglýsa til kínverskra ferðamanna?

Kínverskum ferðamönnum fjölgast hvað hraðast á Íslandi um þessar mundir. Alþjóðlegar kannanir benda til þess að kínverskir ferðamenn eyði að jafnaði þrefalt meira en Bandaríkjamenn og fimmfalt meira en Bretar á ferðalögum sínum. Áhugi þeirra á upplifunum og framandi slóðum fram yfir dýrar merkjavörur fer vaxandi. Ísland hefur því orðið einn af drauma-áfangastöðum kínverskra ferðamanna. Þá telja sérfræðingar að gott gengi strákanna okkar í fótboltalandsliðinu hafi sett Ísland ofarlega á lista Kínverja yfir mest spennandi staði til að heimsækja.

+ Hvað er innifalið í grunnþjónustu Central Pay?

Innifalið í þjónustu Central Pay er færsluhirðing, tækniaðstoð, uppsetning á kínverskum markaðstólum og margt fleira. Við hjálpum þér að auka sölu og bæta sýnileika til þessa ört vaxandi ferðamannahóps með því að setja upp réttar greiðslulausnir og markaðssetja á réttum miðlum.

+ Þarf ég að láta þýða allt yfir á kínversku?

Ef þú ert að selja vörur eða þjónustu á netinu þá mælum við sterklega með því að þýða markaðsefni yfir á kínversku. Það eykur skilning kínverskra kaupenda á því sem í boði er og eykur líkur á því að sala eigi sér stað. Fyrir verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu er skynsamlegt að setja upp límmiða í glugga eða í afgreiðslu sem sýnir augljóslega að þar sé boðið upp á WeChat og Alipay greiðslulausnir. Central Pay útvegar límmiða, spjöld og standa.